Allt í lægi ég er hérna að blogga meðan stelpunar eru að hirfa á myndina the Holiday. Í gær þá ákváðum við að sleppa því að fara á ballið og hafa bara svona sætt lítið stelpu kvöld. Ég eldaði samt mjög góðan mat og Sigrún gerði eftir réttinn sem var ágætur. En allt í lægi mér finnst bara einfaldlega leiðinlegt að blogga um svona hluti þannig ég ætla ekki að gera meira um það . Þannig að ég ætla að blogga hérna um staðreyndir um Sigrúnu, svo Ásdísi, og svo Maríu.
Hún Sigrún er já mjög klaufsk, það eiga samt flestir að vita
Hún á það til að verða alvarleg og segja síðan hluti sem hún ætti ekki að segja og fólk fer þá að taka því alvarlega sem það ætti ekki að gera ;D Þannig að Sigrún er mjög æðislega manneskja sem mér þykir óskaðlega vænt um.
Ásdís er yndislega skrítin! Hún er svo mikið krútt lengst inní hjartanu sínu ;D Hún á það líka til að vera alvarleg en er í alvörunni kolrugluð. Henni finnst gaman í náttúrufr. og það er eitt af því sem við eigum sameiginlegt ;D
María! María! María! Það eru til mörg lög um hana Maríu sem fólk hefur sungið í gegnum tíðirnar. Maður getur sagt henni margt og hún veit líka mikið hún er semsagt manneskjan sem veit allt og maður getur alltaf farið til að vita um eitthvað þegar maður er eitthvað ruglaður í ríminu. Hún er einfaldlega frábær.
Já þær vinkonur mínar eru yndislegar og mig þykir bara vænt um þær og mun það alltaf nema þegar mér mun ekki finnast vænt um þær sem verður öruglega eftir mjög langan tíma ef það verður eitthverntíman. En þá hefur Heiða bloggað hér enn eitt blogg.
Ég kveð núna Heiða